22. september 2023

SKEL undirritar samninga vegna kaupa á 55 íbúðum við Stefnisvog 2 og kauprétt að 35 íbúðum við Stefnisvog 12

Í dag undirritaði SKEL kaupsamning um 55 íbúðir, samtals 5.905 fm, við Stefnisvog 2, 104 Reykjavík, í eigu Stefnisvogs 2 ehf. Kaupverð samkvæmt kaupsamningi er kr. 4.900.000.000. Gert er ráð fyrir því að íbúðirnar verði afhentar fyrir lok árs 2023.

Samhliða undirritun kaupsamnings var gert samkomulag um kauprétt SKEL að 35 íbúðum, samtals 3.816 fm, við Stefnisvog 12, 104 Reykjavík í eigu Stefnisvogs ehf. Verð samkvæmt kauprétti er kr. 3.243.600.000. Nýti SKEL kaupréttinn er gert ráð fyrir því að íbúðirnar við Stefnisvog 12 verði afhentar fyrir árslok 2024.

Hluti kaupverðs verður greiddur með afhendingu hlutafjár og hluthafalána í Reir þróun ehf. á bókfærðu verði. Bókfært virði hlutfjár og fjárhæð hluthafalána SKEL í Reir þróun þann 30.6.2023 nam samtals kr. 1.753.000.000. Komi til nýtingar kaupréttar verður SKEL búið að afhenda alla hluti félagsins í Reir þróun. Að öðru leyti verður kaupverðið fjármagnað með bankaláni og reiðufé.

SKEL stefnir að því að setja íbúðir í útleigu.

Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason, forstjóri SKEL:

„SKEL hefur reynslu og þekkingu á fasteignamarkaði, en 17% eigna félagsins eru í fasteignum eða félögum sem reka og þróa fasteignir. SKEL telur að gerjun sé framundan á fasteignamarkaði, m.a. vegna breytinga hjá stórum leigufélögum. Framboð hefur ekki svarað eftirspurn á undanförnum árum og eftirspurn vex ár frá ári. Íbúðirnar við Stefnisvog 2 verða settar í langtímaleigu.“

Nánari upplýsingar veitir Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason, fjarfestar@skel.is.

Fréttir