Klettur

94% eignarhlutur

Kettur er rótgróið sölu- og þjónustufélag á sviði vinnuvéla, rafstöðva, hjólbarða, vöruflutningabíla o.fl.
1

Starfsfólk

1

Tekjur 2022
m.kr.

1

EBITDA 2022
m.kr.

1

Hagnaður 2022
m.kr.

Starfsemi

Saga Kletts og forvera félagsins nær aftur til 1947 og er því óhætt að segja að félagið byggi á traustum grunni sérhæfðrar þekkingar og reynslu. Árið 2010 markaði nýtt upphaf en þá hófst starfsemi Kletts sem tók yfir allan rekstur vélasviðs Heklu. Allar götur síðan hefur Klettur verið leiðandi í sölu og þjónustu sem nær yfir breiða línu vinnuvéla, aflvéla, rafstöðva, lyftara, rafgeyma, hleðslukrana, hjólbarða, vöruflutninga- og hópferðabíla, gíra og skrúfubúnaðar.

Klettur er með umboð fyrir Caterpillar (CAT) og Scania.

Starfsstöðvar Kletts eru sex talsins. Húsnæði félagsins í Klettagörðum 8-10 er stærst en það er sérhannað fyrir starfsemina og einnig er rekin varahlutaverslun og þjónustuverkstæði á Akureyri. Hjólbarðaverkstæði Kletts eru í Klettagörðum, Suðurhrauni Garðabæ, Lynghálsi og í Hátúni og hjólbarðalager í Holtagörðum.

Heimasíða Kletts

Eignasafnið