Ársuppgjör 2025

Hagnaður eftir skatta nam 4.297 m.kr., arðsemi eiginfjár upp á 10,8%
Eignir félagsins námu 57.895 m.kr.
Eigið fé nam 42.064 m.kr. sem samsvarar 22,4 kr. á hvern útgefinn hlut
Gangvirðisbreytingar af skráðum eignum var neikvæð um 836 m.kr.
Gangvirðisbreytingar af óskráðum eignum var jákvæð um 5.742 m.kr.
Helstu fréttir af eignasafni SKEL 2025:
Óskráðar eignir
Óskráðar innlendar eignir SKEL samanstanda að stærstum hluta af tveimur fyrirtækjum, Styrkási og Dröngum, sem starfa á ólíkum mörkuðum og hvort um sig vinnur að uppbyggingu á öflugum samstæðum fyrirtækja í skyldum rekstri. Styrkás er leiðandi fyrirtæki í þjónustu við atvinnulífið en Drangar móðurfélag framsækinna fyrirtækja á neytendamarkaði.
Umbreytingaverkefnin í eignasafni SKEL eru á réttri leið. Stjórn Styrkás hefur ákveðið að hefja undirbúning að skráningu félagsins í Kauphöll á öðrum ársfjórðungi árið 2027 og yfir 90% hluthafa Dranga hafa undirritað hluthafasamning þar sem kveðið er á um skráningu félagsins í Kauphöll það sama ár. Útlit er því fyrir að hlutfall skráðra eigna í eignasafni SKEL muni taka stakkaskiptum árið 2027.
Styrkás
Rekstur Styrkáss var góður á árinu 2025 og afkoma í samræmi við áætlanir. Rekstrarhagnaður (EBIT) nam um 2.500 m.kr. og er þá búið að taka tillit til fjárfestingakostnaðar. Þjónustutekjur jukust um 29% milli ára og leigutekjur um 11%. Skeljungur átti metár, Klettur einnig í sölu og tekjuvöxtur Stólpa var tæplega 50%. Nettó vaxtaberandi skuldir samstæðunnar námu um 5.300 m.kr. í árslok. Áætlun Styrkás fyrir árið 2026 miðar við að rekstrarhagnaður verði á bilinu 3.350 til 3.650 m.kr.
Í desember 2025 lauk Styrkás kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu, sem er leiðandi þjónustuaðili á sviði umhverfis- og innviðaþjónustu fyrir sveitarfélög og fyrirtæki. Með kaupunum varð til fjórða kjarnasviðið innan Styrkáss, á sviði umhverfis- og iðnaðarþjónustu. Kaupin voru lykilþáttur í að fullmóta Styrkás sem sterkt þjónustufyrirtæki með fjölbreyttu og víðtæku þjónustuframboði til fyrirtækja og sveitarfélaga um allt land. Samhliða hefur félagið fært fasteignir og lóðir samstæðunnar í sérstakt félag, Styrkás fasteignir, en lóðir í eigu félagsins eru samtals 68.000 fermetrar og fasteignir 3.000 fermetrar.
Styrkás gaf út skuldabréf á árinu 2025 sem verða tekin til viðskipta í Kauphöll. Nýverið fylgdi félagið því eftir með útgáfu lengri skuldabréfa. Markmið með skuldabréfaútgáfu er að byggja upp markaðsaðgang og breikka fjármögnunargrundvöll félagsins. Einnig hefur fjölgað í hópi hluthafa Styrkáss á árinu, bæði vegna samruna við Hreinsitækni og fyrr á árinu þegar SKEL seldi samtals 17,5% hlut í félaginu til innlendra stofnanafjárfesta. Viðskiptin auka sýnileika félagsins á fjármálamarkaði og tryggja ákveðna kjölfestu í hluthafahópnum í aðdraganda skráningar í Kauphöll.
Virði 37,7% eignarhlutar SKEL í Styrkási var 11.209 m.kr. um áramót og tók mið af viðskiptunum með Hreinsitækni.
Nýverið gerðu SKEL og Skeljungur með sér kaupsamning varðandi kaup Skeljungs á öllu hlutafé Gallon ehf., og þar með óbeint 25% eignarhlut í EBK. Gallon á og rekur birgðastöðvar fyrir eldsneyti um land allt. Umsamið heildarverð (e. Enterprise Value) í viðskiptunum er 2.885 m.kr. Kaupin koma ekki til með að hafa áhrif á afkomu SKEL, en samhliða viðskiptunum greiðir SKEL upp lán sem Gallon veitti félaginu að fjárhæð 1.305 m.kr. Rekstrarhagnaður Styrkás mun hækka um u.þ.b. 250 m.kr. á ári að viðskiptum frágengnum. Kaupsamningurinn er háður fyrirvara um samþykki samkeppniseftirlitsins.
Drangar
Hlutafélagið Drangar var stofnað sl. sumar í kjölfar samruna Orkunnar, Samkaupa, Löðurs og Lyfjavals. Verslanir félagsins telja í heildina 63, þjónustustöðvarnar 75, bílaþvottastöðvarnar 11 og apótekin 7. Velta samstæðunnar árið 2026 er áætluð 72.972 m.kr., framlegð 22.021 m.kr. og EBITDA eftir leigugreiðslur (EBITDAaL) 5.403 m.kr. Vaxtaberandi skuldir félagsins námu 8.205 m.kr. um áramótin.
Rekstur Dranga á seinni árshelmingi síðasta árs litaðist af umfangsmiklum hagræðingaraðgerðum í matvöruhluta félagsins. Framlegð og aðrar tekjur námu 10.923 m.kr. á seinni helmingi ársins og EBITDA eftir leigugreiðslur 1.532 m.kr. Rekstur Orkunnar og Löðurs gekk með ágætum, fjöldi seldra lítra jókst um tæpt prósent og áskriftarkerfi Löðurs gekk betur en væntingar stóðu til. Tekjur Lyfjavals jukust um tæplega 20% milli ára.
Frá stofnun Dranga hefur verið unnið að því að efla félagið fjárhagslega og styrkja samkeppnisstöðu þess eftir erfið ár í rekstri Samkaupa. Leiðin að því hefur verið tvíþætt, annars vegar með aukningu hlutafjár og hins vegar með aðgerðum í rekstri. Í desember var hlutafé Dranga aukið um 3.600 m.kr. með sölu til innlendra fjárfesta. Frá stofnun félagsins hefur verið hagrætt í rekstri um rúmlega 1.930 m.kr. á ársgrunni. Hagræðingaraðgerðir hafa falið í sér bætt innkaup, minni rýrnun, fækkun stöðugilda og einföldun í rekstri. Drangar hafa lokað 7 verslunum á tímabilinu og einu apóteki, en þessar einingar voru í taprekstri.
Drangar eru nú í samstarfi við alþjóðlegu verslunarkeðjuna SPAR um notkun á SPAR vörumerkinu á Íslandi. Með samstarfinu verður félagið hluti af alþjóðlegu verslananeti SPAR sem samanstendur af um 13.800 verslunum í 48 löndum. Samstarfið kemur til með að veita Dröngum aðgang að vöruúrvali, þekkingu, reynslu og markaðsefni SPAR en verslanirnar þjónusta um 14,7 milljónir neytenda daglega. Hugmyndafræði SPAR gengur út á staðbundinn rekstur byggðum á bestu alþjóðlegu þekkingu, ásamt áherslu á ferskleika, vöruúrval, þjónustu og gæði.
Lagt er upp með að í lok árs 2027 muni 40 verslanir sem nú starfa undir vörumerkjum 10-11, Krambúðin og Kjörbúðin bera alþjóðlega SPAR vörumerkið. SPAR verður þannig sú keðja á Íslandi sem er með flestar verslanir. Með samstarfinu stíga Drangar stórt skref í einföldun vörumerkjaframboðs. Þau verða þá þrjú í rekstri félagsins, Nettó, Prís og SPAR, öll með skýra aðgreinda stöðu á markaði. Samhliða innleiðingunni ráðgera Drangar að geta einfaldað í rekstri og bætt innkaup, sem mun leiða til lægra vöruverðs í þægindaverslunum, að hluta til vegna aðgangs að alþjóðlegum birgjasamningum SPAR.
Bókfært virði 60,8% eignarhlutar SKEL í Dröngum var 17.016 m.kr. um áramótin og byggir á virði hluta í hlutafjáraukningunni í desember.
Erlendar eignir
INNO
Árið 2024 keyptu SKEL og Axcent of Scandinavia belgísku verslunarkeðjuna INNO sem starfrækir 16 verslanir víðsvegar um Belgíu. SKEL heldur á 50% eignarhlut í félaginu á móti Axcent of Scandinavia. Í kjölfar eigendaskiptanna árið 2024 var ráðist í víðtækar breytingar á rekstri félagsins, knúnar áfram af nýjum eigendum. Þær hafa skilað sér í marksvissari ákvarðanatöku og skýrari áherslum í rekstri. Þá hefur verið lögð meiri áhersla á eigin vörumerki sem hefur bætt framlegð og aukið virði þjónustunnar fyrir viðskiptavini.
Jákvæður rekstrarviðsnúningur var hjá INNO á rekstrarárinu 2024/25 (okt.–sept.). Tekjur námu 42.212 m.kr. og jukust um 299 m.kr. milli ára, á meðan EBITDA hækkaði um 618 m.kr. og nam 1.994 m.kr. á tímabilinu, sem samsvarar 44,9% aukningu.
Rekstrarumhverfi smásölu í Evrópu var mjög krefjandi á seinni hluta ársins og áfram í upphafi þessa árs. Belgía hefur ekki farið varhluta af því. Sala á fyrsta ársfjórðungi nýs rekstrarárs var sömuleiðis undir væntingum stjórnenda sem endurspeglar áframhaldandi áskoranir. Þrátt fyrir erfiðar ytri aðstæður vinnur félagið áfram að frekari hagræðingu, aukinni sjálfvirknivæðingu og innleiðingu nýjunga sem ætlað er að styrkja rekstrargrundvöll INNO enn frekar til framtíðar. Áætlun INNO fyrir árið 2025/26 miðar við að tekjur verði 43.816 m.kr. og EBITDA 1.566 m.kr.
Baridi
Baridi Iceland hf. er félag um þróun og vinnslu námuleyfa í Tansaníu. Félagið lauk hlutafjáraukningu að fjárhæð USD 7 m. á fyrri hluta árs 2025. Eignarhlutur SKEL í Baridi Iceland nemur 31,8% hlutafjár. Hlutafjáraukningunni er ætlað að fjármagna næstu skref í þróun starfseminnar, einkum framkvæmdir vegna uppbyggingar koparvinnslu félagsins á Kapalamsenga svæðinu í Kataví, sem er í vesturhluta Tanzaníu. Kostnaður við uppbyggingu koparvinnslunnar er áætlaður USD 4,9 milljónir og er gert ráð fyrir að vinnslan geti hafið framleiðslu undir lok árs 2026. Handbært fé í lok árs 2025 var 685 m.kr. Virði eignarhlutar í Baridi í bókum SKEL nam 2.181 m.kr. um áramót og byggir á verði hlutafjár í hlutafjáraukningu fyrr á árinu.
Fasteignir
SKEL keypti í heildina 105 íbúðir að Stefnisvogi 2-36 á árunum 2023 og 2024 en kaupin voru liður í því að þroska efnahagsreikning félagsins, þannig að þróunareignir urðu að fullbúnum fasteignum með þekkt markaðsverð. Á árinu 2025 voru seldar 17 íbúðir. Virði fasteigna SKEL í Stefnisvogi um áramót stóð í 8.523 m.kr. Fasteignasafnið taldi þá 88 fasteignir við Stefnisvog. Skuldir á móti fasteignum í Stefnisvogi nema 6.177 m.kr.
Í gær, þann 4. febrúar undirritaði SKEL kaupsamning um sölu á 49 íbúðum fyrir samtals 4.192 m.kr. Við uppgjör viðskiptanna koma skuldir SKEL til með að lækka um 3.508 m.kr.
Skráð hlutabréf
Afkoma skráðra hlutabréfa SKEL var neikvæð um 836 m.kr. og nam heildareign í skráðum hlutabréfum 9.085 m.kr. í lok árs. Verðmætustu skráðu eignir SKEL í lok tímabils voru 15,8% eignarhlutur í Kaldalóni hf., sem hafði markaðsvirði um 4.653 m.kr. og 8,2% eignarhlutur í Skaga hf. að markaðsvirði um 3.123 m.kr. Önnur skráð hlutabréf í eignasafni SKEL voru að markaðsvirði 1.308 m.kr. í lok tímabils. Verðmæti skráðra hlutabréfa nam 16% af eignum SKEL í árslok, en til lengri tíma er stefnt að því að 50% eigna félagsins séu á skráðum markaði, líkt og vikið er að hér að framan.
Kaldalón óx og steig mikilvæg skref í átt að yfirlýstum markmiðum félagins á sl. ári. Á árinu bætti félagið við sig samtals 17.000 fermetrum og telur fasteignasafn Kaldalóns nú um 144.000 fermetra. Þá undirritaði félagið kaupsamning um fasteignir FÍ fasteignafélags sem telja rúma 25.000 fermetra og verður safnið því um 170.000 fermetrar. Kaldalón fjármagnar kaup á fasteignum FÍ fasteignafélags að fullu með útgáfu hlutafjár og markaðsskuldabréfa sem mun efla félagið fjárhagslega og auka breidd í hópi fjárfesta. Mikil tækifæri felast í endurfjármögnun Kaldalóns og nýtti félagið síðasta ár til að auka frekar útgáfu markaðsskuldabréfa. Árið 2026 áformar félagið að hefja arðgreiðslur, en félagið hefur þegar nýtt markaðinn til endurkaupa og þannig byrjað að skila fjármunum til hluthafa.
Skagi hefur sömuleiðis færst nær þeim markmiðum sem kynnt voru samhliða umbreytingu félagsins úr tryggingafélagi í fjármálasamstæðu. Þungamiðja rekstrar Skaga er áfram VÍS, en tryggingafélagið hefur leitt vöxt á tryggingamarkaði undanfarin misseri og færist nærri því að endurheimta fyrri stöðu sína á þeim markaði. Umtalsverður vöxtur hefur verið í fjármálastarfsemi félagsins og góður vöxtur í sjóðastýringu. Lykilatriði er að félagið nái nú að breyta þessum vexti í verðmæti fyrir hluthafa.
Stjórnir Skaga og Íslandsbanka tilkynntu undirritun skilmálaskjals um samruna og frekari viðræður í október sl. Lagt er til grundvallar að hluthafar Skaga eignist 15% í sameinuðu félagi og samlegð er metin á bilinu 1,8-2,4 ma.kr. Í tilkynningu er fjallað um aukna sóknarmöguleika á banka- og tryggingamarkaði annars vegar og fjárfestingabanka- og eignastýringarstarfsemi hins vegar. SKEL er fylgjandi samrunanum eins og hann hefur verið kynntur á markaði.
Hluthafar
Á aðalfundi SKEL þann 6. mars 2025 samþykktu hluthafar að félagið skyldi greiða út arð til hluthafa á árinu 2025 vegna rekstrarársins 2024 að fjárhæð 6.000 m.kr., og skyldi arðurinn greiddur út í tveimur greiðslum. Fyrri hluti arðgreiðslunnar, að fjárhæð 3.000 m.kr. fór fram þann 20. mars 2025. Seinni arðgreiðslan, að fjárhæð 3.000 m.kr., fór fram 5. nóvember í samræmi við ákvörðun hluthafafundar deginum áður.
Stjórn félagsins leggur til að greiddur verði út arður til hluthafa á árinu 2026 vegna rekstrarársins 2025 að fjárhæð 2.200 m.kr. sem samsvarar 1,17 kr. á hlut. Nánari upplýsingar verða í fundarboði aðalfundar.
Stjórn mun leggja fyrir aðalfund félagsins endurnýjun á heimild til kaupa á eigin hlutabréfum. Að fengnu samþykki aðalfundar mun félagið hefja undirbúning framkvæmdar endurkaupaáætlunar.
Fjöldi hluthafa í upphafi árs 2025 voru 881 og í lok árs 979.
Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason, forstjóri SKEL:
„Það skiptist í tvö horn í rekstri og viðgangi SKEL á árinu 2025. Ávöxtun var viðunandi miðað við markaðsaðstæður, en ekki í samræmi við markmið. Vegur þar þyngst að skráðar eignir skiluðu tapi. Að þessu leitinu til fer árið 2025 því ekki í sögubækurnar.
Hlutverk SKEL er að þróa tækifæri með langtíma verðmætasköpun að leiðarljósi. Þar er félagið á réttri leið. Safn óskráðra eigna er að taka á sig æ skýrari mynd. Uppbygging félaganna Dranga og Styrkás gengur vel. Þar er áskorunum breytt í verkefni og við segjum hvað við ætlum að gera og gerum það.
SKEL gegndi lykilhlutverki við stofnun Dranga sem er móðurfélag framsækinna fyrirtækja á neytendamarkaði um allt land og gegna mikilvægu hlutverki í samfélaginu. Þar er mikil vinna að baki og meiri framundan.
Styrkás náði fullum þroska á nýliðnu ári sem leiðandi fyrirtæki í þjónustu við atvinnulífið. Með kaupum á félögum í umhverfis- og innviðaþjónustu hefur Styrkás treyst allar nauðsynlegar stoðir félagsins og er því reiðubúið til að efla sína alhliða þjónustu. Sérstaklega ánægjulegt hefur verið að verða var við áhuga fjárfesta á fyrirtækinu. Stjórn félagsins hefur tekið ákvörðun um að hefja undirbúning fyrir skráningu félagsins í Kauphöll á næsta ári. Þar á félagið heima og verður góð viðbót.
Þá er ástæða til að nefna velgengni þeirra skráðu félaga á árinu sem vega hvað þyngst í eignasafni SKEL. VÍS, sem er hluti af Skaga, endurheimti aftur sína fyrri stöðu á tryggingamarkaði og þá tók Kaldalón mjög afgerandi skref með kaupum á fasteignum FÍ fasteignafélags og festir sig þannig í sessi sem öflugt fasteignafélag á markaði.“
Fjárhagsdagatal SKEL fjárfestingafélags hf. fyrir árið 2026:
Afkomukynning ársuppgjörs 2025: 6. febrúar 2026 í salnum Studios á Reykjavík Edition kl. 08:30
Aðalfundur 2026: 5. mars 2026
Uppgjör fyrri hluta árs 2026: 13. ágúst
Uppgjör seinni hluta árs 2026 og ársuppgjör 2026: 11. febrúar 2027
Aðalfundur 2027: 11. mars 2027









