19. september 2022

Orkan kaupir 34% í Straumlind

Orkan hefur náð samkomulagi um kaup á þriðjungshlut í nýsköpunar- og raforkusölufyrirtækinu Straumlind.

Frá vinstri: Frá Orkunni: Kristján Már Atlason, Lárus Árnason, Auður Daníelsdóttir. Frá Straumlind: Símon Einarsson, Gunnar Einarsson, Alexander Moses og Ólöf Embla Einarsdóttir.

Orkan IS, félag í 100% eigu SKEL hefur náð samkomulagi um kaup á 34% eignarhlut í nýsköpunar- og raforkusölufyrirtækinu Straumlind ehf., sem var stofnað árið 2020.

Markmið Straumlindar hefur frá upphafi verið að bjóða viðskiptavinum sínum hagstæðasta rafmagnsverð á Íslandi. Viðtökur íslenskra heimila hafa verið frábærar og hefur fjöldi viðskiptavina ríflega fimmfaldast frá síðastliðnum áramótum. Straumlind hefur þróað eigin hugbúnað, sem byggir á gervigreind og sjálfvirkni. Nýlega kynnti Straumlind til leiks nýja þjónustu, sem býður notendum upp á ódýrara rafmagn á nóttunni. Með þessu vonast fyrirtækið til að stuðla að álagsjöfnun rafmagns, nýta innviði orkukerfisins betur og bjóða upp á ódýrari verð.

Síðustu tvö ár hafa verið ævintýri líkust hjá Straumlind og við erum gríðarlega þakklát fyrir jákvæðar móttökur íslenskra heimila og fyrirtækja. Okkar markmið með stofnun félagsins var að nýta tæknina til að stuðla að lægra orkuverði og betri nýtingu raforkuinnviða landsins. Við erum sannfærð um að samstarfið við Orkuna muni styrkja Straumlind í þessari vegferð og lítum björtum augum til framtíðarinnar.
Símon Einarsson, Forstjóri Straumlindar
Við erum spennt fyrir því að fá Straumlind í Orku fjölskylduna. Við teljum fyrirtækið samsvara vel gildum og framtíðarsýn Orkunnar. Með þéttu samstarfi við Straumlind teljum við okkur geta kynnt fyrir tugum þúsunda okkar viðskiptavina nýjar og snjallar lausnir til að lækka hjá sér raforkukostnað. Við viljum vera fyrsta val í orkuþörfum heimilanna og virkir þátttakendur í orkuskiptunum næstu áratugina.
Auður Daníelsdóttir, Forstjóri Orkunnar

Fréttir