7. apríl 2022

Ráðning forstjóra og fjármálastjóra

Stjórn SKEL fjárfestingafélags hf. hefur ráðið Ásgeir Helga Reykfjörð Gylfason í starf forstjóra og Magnús Inga Einarsson í starf fjármálastjóra félagsins. .

Samhliða lætur Ólafur Þór Jóhannesson af störfum sem forstjóri en hann hefur starfað hjá SKEL, þar áður Skeljungi hf., frá árinu 2019, þar af sem forstjóri frá því í febrúar árið 2022. Ólafur mun vera stjórn félagsins innan handar þar til nýr forstjóri tekur til starfa.

Það er mikill fengur í að fá Ásgeir og Magnús til liðs við félagið og taka að sér það verkefni að byggja upp öflugt skráð fjárfestingarfélag. Ásgeir hefur mikla þekkingu og reynslu úr Íslensku atvinnulífi, nú síðast sem aðstoðarbankastjóri Arion banka hf. og Magnús verið lykilaðili í uppbyggingu Kviku banka hf. sl. ár. Þessir tveir öflugu aðilar munu hrinda í framkvæmd áframhaldandi umbreytingu félagsins, þar sem lögð verður áhersla á fjárfestingar í fyrirtækjum og þróun fyrirtækja, sem hafa meðal annars að leiðarljósi að einfalda fólki og fyrirtækjum lífið. Ég vil þakka Ólafi Þór Jóhannessyni fráfarandi forstjóra fyrir vel unnin störf undanfarin ár við umbreytingu á félaginu og fyrir að leiða það fyrstu skrefin sem fjárfestingarfélag á meðan unnið var að ráðningu á forstjóra þess til framtíðar.
Jón Ásgeir Jóhannesson, Stjórnarformaður

Fréttir