11. maí 2023

Gréta María ráðin til að byggja upp og leiða nýtt afl á smásölumarkaði 

Rekstur Heimkaupa verður í breyttri mynd þar sem allar einingar sem snúa að verslunarrekstri Orkunnar verða seldar til Heimkaupa.

Gréta María Grétarsdóttir hefur verið ráðin forstjóri Heimkaupa. Gréta María hefur mikla reynslu af verslunarrekstri og stýrði m.a. Krónunni 2018-2020. Þar leiddi hún m.a. vel heppnaða endurmörkun á starfsemi Krónunnar.

Rekstur Heimkaupa verður í breyttri mynd þar sem allar einingar sem snúa að verslunarrekstri Orkunnar verða seldar til Heimkaupa.
Þar undir falla:

  • 9 verslanir undir merkjunum 10-11, Extra og Orkunnar
  • 7 apótek Lyfjavals, þar af 4 með bílalúgum
  • 8 bakarí Brauð & Co, 38% hlutur
  • Veitingarekstur Gló auk eignarhlutar í Clippers sem rekur Sbarro

Eftir kaup á þessum rekstrareiningum verður Heimkaup í forystu smásölufyrirtækja hér á landi sem leggja áherslu á þægindi fyrir viðskiptavini og sveigjanleika í þjónustu. Samanlögð velta allra félaga innan samstæðunnar er áætluð um 11-12 milljarðar á þessu ári og mun sameinað félag hefja starfsemi þann 1. júlí 2023. Stærstu hluthafar Heimkaupa eftir þessar breytingar verða SKEL, Orkan, sem er dótturfélag SKEL, og Norvik.

Gréta María, nýr forstjóri Heimkaupa: „Ég er afar stolt af því að fá tækifæri til að leiða þetta nýja afl á smásölumarkaði sem verður til með sameiningu þessara félaga. Vörumerkin eru margvísleg og hafa öll sína styrkleika og með því að setja þau undir sama hatt verður hægt að ná fram auknum slagkrafti og hagkvæmni. Við munum svo á næstu misserum kynna til leiks spennandi nýjungar á smásölumarkaði.“

Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður SKEL og stjórnarmaður í Heimkaupum: „Ég tel að það séu mikil tækifæri á smásölumarkaðnum fyrir nýjan aðila með skýrar áherslur og sterkt bakland. Að félaginu standa hluthafar með mikla reynslu af smásölu og verslunarrekstri og við ætlum okkur stóra hluti með þetta félag. Það er frábært að fá Grétu Maríu til liðs við okkur með sína reynslu og þekkingu og gefur okkur byr undir báða vængi. Við viljum auka samkeppni, með tilheyrandi ávinningi fyrir neytendur.“

Fréttir