10. febrúar 2023

Kristján Már tekur við sem forstjóri Kletts

Skeljungur gekk formlega frá kaupunum á Kletti – sölu og þjónustu ehf. í dag og tók Kristján Már Atlason við sem forstjóri Kletts.

Skeljungur, dótturfélag SKEL gekk formlega frá kaupunum á Kletti – sölu og þjónustu ehf. í dag og tók Kristján Már Atlason við sem forstjóri félagsins. Samhliða tók Skel fjárfestingafélag yfir Klettagarða 8-10 ehf., félaginu sem á og rekur húsnæðið sem hýsir hluta af starfsemi Kletts.

Knútur Grétar Hauksson, núverandi forstjóri og stærsti eigandi Kletts, fer út úr eigendahópnum en verður stjórnarformaður félagsins. Bjarni Arnarsson, framkvæmdastjóri sölusviðs, Sveinn Símonarson, framkvæmdastjóri þjónustusviðs, og Kristján Már verða í nýjum hluthafahópi. Birgir Sigurðsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, mun starfa áfram með nýjum eigendum.

Klettur er sölu- og þjónustufyrirtæki sem byggt er upp utan um alþjóðleg vörumerki á sviði vinnuvéla, vörubíla, hópbifreiða, tækja, skipavéla, varaaflsstöðva og hjólbarða. Klettur er umboðsaðili Scania, Caterpillar, Ingersoll Rand, Goodyear, Hankook og Nexen á Íslandi auk ýmissa annarra vörumerkja.

Klettur rekur þjónustuverkstæði í Reykjavík og á Akureyri. Þá er félagið einn stærsti söluaðili hjólbarða á Íslandi og starfrækir hjólbarðaverkstæði undir nafni Kletts ásamt því að eiga vörumerkið Sólningu en fjögur sjálfstæð verkstæði eru rekin undir nafni þess. Hjá félaginu starfa 115 manns.

Skeljungur og Klettur undirrituðu kaupsamning í október síðastliðnum með fyrirvörum um samþykki helstu birgja félagsins ásamt samþykki Samkeppniseftirlitsins. Um miðjan janúar lágu fyrir samþykki allra aðila og féll kaupandi þar með frá öllum fyrirvörum. Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka var ráðgjafi seljanda í viðskiptunum en LEX lögmannsstofa var ráðgjafi SKEL og Skeljungs.

Það eru mjög spennandi og metnaðarfull áform framundan hjá Kletti. Við ætlum okkur að halda uppbyggingu félagsins áfram á komandi árum og ná fram frekari vexti. Við munum skoða ýmsar leiðir til þess að útvíkka starfsemina og þjónustunetið. Við erum bjartsýn á íslenskan efnahag á næstu árum og gerum ráð fyrir að styðja áfram vel við uppbyggingu innviða hérlendis með okkar þjónustu. Það eru mikilvæg verkefni á dagskrá sem snúa meðal annars að orkuskiptum og aukinni stafrænni þjónustu eða sjálfvirknivæðingu við viðskiptavini okkar í samstarfi við okkar öflugu birgja.
Kristján Már Atlason, Forstjóri Kletts

Fréttir